K: Hvað heitir mamma þín og pabbi?
B: svarar eftir dálítinn tíma
K: þekkist þið vel?
B: já, hann er stundum heima hjá mér.
K: er hann kannski skyldur þér?
B: já, hann er bróðir minn !!
"Systir mín fótbrotnaði á þessum putta"
"Geggjað langafi minn er dáinn"
K: Veistu símann heima hjá þér?
B: Já, það held ég nú, hann er upp í hillu!!
Tveir drengir voru að koma í leikskólann. Stelpa kemur fram og tekur á móti þeim, snýr sér í hring og sýnir þeim kjólinn sem hún er í. Þá segir annar strákurinn "alveg gullfalleg stúlka"
Barn var að lita mynd af Karíusi og Baktusi. Það snýr myndinni sinni á hvolf og segir "ég get bara ekki horft á þá þeir eru svo hræðilegir"
Barn og kennari að skoða beinagrind. Barnið segir við kennarann "hey, þetta er greinabind"
Barn kemur til kennara og biður um tónlist í salinn "viltu spila Rannýjardóttir" (Ronju Ræningjadóttir)
"Má ég hlusta á Kalla á bakinu"
Barn kemur úr salnum og biður um að segja viftuna í gang. "Viltu setja lyftuna í gang það er nefnilega svo rosalega kalt í salnum"
Kennari spyr barn hvað það fékk í skóinn og barnið svarar þvottavél (þvottapoki)