Lestrarhvetjandi umhverfi og aðferðir hafa verið í Klettaborg mörg undanfarin ár og í vor var sótt um styrk til Sprotasjóðs fyrir þróunarverkefni sem bar heitið ”Leikskólalæsi - lestur er leikur einn”. Því miður fékkst ekki styrkur að þessu sinni en þar sem áhugi er mikill meðal kennara leikskólans var ákveðið að byrja að kynna sér leikskólalæsi og þróa áfram í leikskólanum. Tilgangur verkefnisins er aðallega að efla enn frekar málþroska og styrkja undirstöður læsis sem nýtast mun börnunum til áframhaldandi skólagöngu. Allir þættir læsis þ.e. tal, hlustun, lestur og ritun eru hafðir til hliðsjónar.
Á skipulagsdegi 19. ágúst s.l. fóru allir kennarar leikskólans til Akureyrar á námskeið um leikskólalæsi hjá Háskólanum á Akureyri og skoðaði jafnframt leikskólann Kiðagil sem vinnur með leikskólalæsi.